Aðalsíða | Um okkur | Fréttir | Íveruhús hunda | Tenglar | Hvolpar | Dalsmynnisræktun | Hvolpapartý | France Bulldog | > Hundar | > Tíkur | Pug | > Hundar | > Tíkur | Papillon | > Hundar | > Tíkur | Chihuahua | > Hundar | Tíkur | Japanese Chin | > Hundar | Calvalier King Charles Spaniel | Pomeranian | > Hundar | > Tíkur | Pincsher | > Hundar | > Tíkur | Pekingese | > Hundar | Púðli | > Hundar | > Tíkur | ChineseCrested | Tibetan Spaniel | Yorkshire Terrier | Sýningar

Dalsmynni hundagallerí ehf

 

Pomeranian

 

 

sh104320.jpg

Pomeranian- tegundalýsing

pommmar.jpg

Pomeranian er glaður, síkvikur smáhundur. Hann aðlagar sig með góðu geði hvort sem er í lífi í einbýlishúsi eða eins manna smáíbúð. Hann nýtur þess að liggja í keltu húsbóndans eða fara í gönguferðir með honum, en hann unir sér líka aleinn út í garði. Hann er tryggur og fylgispakur félagi. Pomeranian nýtur þess að láta klappa og kjassa sig, en hann er röskur smáhundur og er fús í alla þær gönguferðir sem húsbóndanum æskir. Það eru til 14 litabrigði af honum. Hann vegur 1,5-3 kg.Pomeranian er minnsti Spísshundurinn. Hann er líflegur og greindur hundur, sem er svolítið refslegur í útliti. Hann geltir þó nokkuð mikið sé ekki tekið fyrir það, það gerir hann að góðum varðhundi. Pomeranian er fyrirtaks gæludýr, vinalegur og tryggur. Hann er þolir nokkuð vel kalda veðráttu. Greindur, líflegur, árvakur og mannblendinn. Svolítið montinn í framkomu, en yfirleitt fálátur gagnvart ókunnugum.

Kostir:

Pommarnir eru fyrst og fremst smáhundar.
Þeir henta einstaklega vel íslenskri veðráttu, því þeir eru með tvöfaldan feld.
Þeir henta einnig vel í þéttbýli, því þeir eru smáir en knáir.
Þeir eru einstaklega húsbóndahollir.

Meira um Pomeranian

Af hverju passar Pomeranian fyrir mig?
Sá sem býr í litlu húsnæði, ætti að velja sér smáhund. Margir velja sér smáhund, þó þeir hafi stóran garð, vegna þess að þeim langar í hund sem er félagi, getur setið í kjöltunni og er þægilegur í meðförum í þéttbýli. Pomeranian verður mjög hændur að fjölskyldu sinni. Hafa skal í huga að pommar eru ekki barnaleikföng og vegna smæðar sinnar henta þeir ekki ungum börnum nema undir eftirliti fullorðinna. Meðalaldur er 15 ár.
Pomeranian er frægur fyrir sinn fallega feld. Það góða við hann er að feldurinn flækist ekki og er frekar auðveldur, en til að hann sé fallegur að bursta Pommana reglulega og nota til þess hundabursta fyrir hunda með tvöfaldan feld. Þó verður að varast að bursta ekki feldinn allan í burtu. Ég bursta mína 1-2 í mánuði mjög vel. Svo hef ég léttari bursta til að taka burtu skít og strá sem geta fest í feldinu við útiveru. Best er að byrja við hausinn og bursta jafnt upp og færa sig hægt aftar. Mikilvægt er að tæta ekki feldinn þannig að hann verði allur reittur. Ef hárin eru flókin má dýfa burstanum í hárnæringu fyrir hunda þynnta í vatni og þá ætti að ganga snuðrulaust að bursta hundinn. Ekki er ráðlegt að baða hann of oft, helst ekki oftar en þriðja hvern mánuð. Gott er að bursta hundinn fyrir baðið og létt þurrkun með hárþurrku getur gert útslagið. Alltaf skal passa að hundinum verði ekki kalt og forkelist. Gott er að fara með hundinn á snyrtistofu fyrir hunda og fá góð ráð þar. Ef sýna á hundinn er nauðsynlegt að láta snyrta hann hjá hundasnyrtir sem vanur er að eiga við Pomeranian.
Pomeranian eru heilsuhraustir hundar að upplagi, en dýralæknir er mikilvægur í lífi hundsins rétt eins og okka mannanna. Dýralæknirinn þarf að þekkja vel til tegundarinnar og geta gefið góð ráð. Hundurinn er heilsufarsskoðaður og búinn að fá sína fyrstu sprautu þegar hann er afhentur. En nú þarf að fylgja þessu eftir og hann þarf að fá aðra sprautu eftir mánuð og svo ár. Stundum þarf að taka augntennur sem fara ekki sjálfar. Gott er að fara með hundinn í tannsteinshreinsun ef með þarf.

Hundar úr okkar ræktun

Hér fyrir neðan eru myndir af tveimur hundum úr okkar ræktun sem hafa orðið besti hundur sýningar 
Dalsmynnis Dodge Toscanelli (Doddi ) var bestihundur sýningar september 2003 og Dalsmynnis Herkúles hefur tvisvar sinnum orðið bestihundur sýningar fyrst Október 2008 og svo í mars 2009

   
Dalsmynnis Dodge Toscanelli              Dalsmynnis Herkúles 

Allur réttur áskilin og í eigu Dalsmynnis