|
Miniature Pinscher er ekki smækkuð útgáfa af Doberman eins margir halda. Ræktun hans á sér langa sögu, en hann á uppruna í
Þýskalandi þar sem hann var m.a. notaður við veiðar á dádýrum. Síðar meir hefur hann verið gæludýr borgarbúans sem langar
að eiga stóran hund, stæltan og vígalegan, en sem hentar umhverfi borgarainnar. Miniature Pinscher er nákvæmlega hundur sem
uppfyllir þessi skilyrði.
Miniature Pinscher er mjög hágengur og þykir mörgum göngulagið afar heillandi. Hann er blíðlyndur, sjálfsöruggur og þægilegur
heimilishundur sem fer lítið úr hárum og hefur gaman af alls kyns þjálfun ekki síst hlýðniþjálfun.
Hann hefur næmt þefskyn og getur náð góðum árangri í því að þefa upp slóð manna og dýra.
Feldhirða er lítil og felst aðallega í því að strjúka yfir feldinn með þar til gerðum hanska.
Leyfileg stærð á herðakamb er 25-30 cm. Þyngd 4-6 kg.Leyfilegir litir eru rauður, rauðbrúnn eða black and tan.(Heimild:
Hundabók AB; bls.233)
Kostir:
Smávaxinn og hentar því vel í bæ og borg.
Feldhirða lítil.
Fer lítið út hárum.
Getur starfað sem leitarhundur.
Sjálfsöruggur og þægilegur heimilishundur.
Gallar:
Þarf aga og verkefni.
Þarf nokkra hreyfingu.
Meira um Miniature Pinscher
|