|
Papillon, sem þýðir fiðrildi á frönsku fékk nafnið vegna eyrnanna sem minna helst á fiðrildi þegar hann hleypur er líkt og
hann blaki vængunum. Papillon er lítill fíngerður smáhundur, barngóður og vinalegur hundur sem getur laðað sig lífi í sveit
og í borg. Þeir eru um 28 cm á herðakamb og 1,5-2,5 kg tíkur en 2,5-4,5 kg hundar. Allir litir eru leyfanlegir á hvítum grunni.
Hvítur litur á líkama og fótum verður að vera. Ríkjandi hvítur litur á höfði er galli. Papillon er með silki feld sem nær
oftast niður í jörð. Þetta er glaðir og fjörugir smáhundar og eru mjög góðir heimilishundar.
Sumir ruglast á Papillon og síðhærðum Chihuahua hundum enda er Papilloninn einn af forfeðrum Chihuahua og eru tegundirnar
ekki ólíkar í útliti nema í augum þeirra sem vel þekkja til.
Papillonin er námsfús hundur sem getur náð góðum árangri í hlýðnikeppnum. Hann er venjulega heilsuhraustur og þerfnast
ekki mikilla hreyfingar. Feldhirðan er talsverð einkum á sýningahundum.(Heimild: Hundabók AB; bls. 225)
Meira um Papillon
|