Aðalsíða | Um okkur | Fréttir | Íveruhús hunda | Tenglar | Hvolpar | Dalsmynnisræktun | Hvolpapartý | France Bulldog | > Hundar | > Tíkur | Pug | > Hundar | > Tíkur | Papillon | > Hundar | > Tíkur | Chihuahua | > Hundar | Tíkur | Japanese Chin | > Hundar | Calvalier King Charles Spaniel | Pomeranian | > Hundar | > Tíkur | Pincsher | > Hundar | > Tíkur | Pekingese | > Hundar | Púðli | > Hundar | > Tíkur | ChineseCrested | Tibetan Spaniel | Yorkshire Terrier | Sýningar

Dalsmynni hundagallerí ehf

France Bulldog  

 

sh104530.jpg

Tegundalýsing

Franskur Bulldog er mesti ljúflingur og sérlega barngóður. Hann er skynsamur,fljótur að læra og hefur gaman að taka þátt í leikjum,en hann er lítt lagaður til að hlaupa mikið og þolir illa hita.Þá nær hann ekki andanum og eru til dæmi að líði yfir Franska Bulldoga í heitu sólskini og það getur einnig gerst á hundasýningum þar sem er lítið súrefni. Af sömu ástæðu má ALLS ekki skilja Bulldog eftir út í bíl eða loftlausum klefum.
Franskir Bulldogar eru ekki þeir heilsuhraustustu en þó mun betur staddir en frændur þeirra þeir ensku. En óhætt er að mæla með honum sem góðum fjölskylduhundi,hann er mjög trúr félagi og vökull varðhundur. Þó verður að hafa í huga að Bulldog eru mjög ráðríkir,einkum gagnvart öðrum hundum. Þó er það mismunandi og ef þeir alast upp með öðrum hundum þá gætu þeir verið meira umburðalyndir.
Þetta hundakyn var upphaflega ræktað til að hafa stórann haus og grannar mjaðmir,það dregur þó þann dilk á eftir sér að tíkur eiga erfitt með að gjóta,svo að nær alltaf er gerður keisaraskurður,bulldog-got er oftast með 1 eða upp í 6 hvolpum. Franskir Bulldogar lifa í ca. 10-11 ár.
Muna þarf að þennann hund þarf að koma fram með virðingu eins og aðrar tegundir,Bolabítar eru mjög barngóðir en eru alls ekki leikföng fyrir börn og ekki er æskilegt að börn sjái um hundinn t.d út að labba. Þeir eru líka miklar félagsverur og líkar illa við langa einveru.
Hæð á herðakamb 25-35 cm og 8-14 kg
Franski Bulldoginn er mjög viljugur og fljótlegur að þjálfa. Þeir þurfa sína daglegu göngutúra til að halda sér í formi, en þó eru þeir ekki gerðir fyrir mjög langar göngur.
Leyfðir litir eru:Bröndóttur, flekkóttur eða ljósbrúnn.
Gulbrúnn.
Augun þarf að strjúka,hrukkur þarf að þrífa mjög vel og eyrun þarf að þrífa vikulega,best er að þrífa þau með bómullarhnoðra.Klóm er haldið stuttum með að klippa þær.
Mikilvægt er að halda hrukkum og fellingum kringum munninn hreinum og hreinsa matarleifar burt.Bulldog tegundir eiga það til að fá "bulldogbólur" og best er að setja græðandi krem (heilsukrem) á þær svo að myndist ekki skallablettur.
(Heimild: Hundabók AB; bls.31)

Meira um Franskan Bulldog

Ótrúlega blíðir þrátt fyrir úrillskulegt útlit

Allur réttur áskilin og í eigu Dalsmynnis