|
Tegundalýsing
Chinese Crested eða Kínverski Faxhundurinn er orkumikill, athafnasamur, líflegur, og þokkafullur hundur með kröftugur
og áberandi fallegar hreyfingar enda vinsæll sýningarhundur. Hárlausar tegundir eru frekar erfiðar í ræktun.Til eru tvö afbrigði
af Faxhundinum. Loðinn, þeir eru kallaðir Powder puff(rikkorn), og annars vegar hárlaus og eru báðar feldgerðirnar viðurkenndar,
og geta komið í sama gotinu. Sá hárlausi hefur hár á ofanverðu höfði, skotti og á neðanverðum fótleggjum, annars er hann alveg
hárlaus.
Faxhundurinn er þekktastur af hárlausu tegundunum og nýtur vaxandi vinsælda. Hann er ástúðlegur, líflegur, greindur og
skemmtilegur félagi.
Faxhundurinn er varkár við ókunnuga og tekur sér tíma í að kynnast nýju fólki, þó ekki árásagjarn, en hænist mjög af eiganda
sínum.
Fylgjast þarf vel með húðinni á hárlausa afbrigðinu, baða þarf þá reglulega og bera þarf olíu og/eða krem á húðina. Hann
er viðkvæmur fyrir kulda og sól. Bursta þarf yfir feld síðhærða afbrigðisins daglega og baða reglulega.
Faxhundurinn þarf meðalmikla, daglega hreyfingu.
Allir litir og samsetning af litum leyfileg.
Hæð
Rakkar 28 - 33 sm.
Tíkur 23 - 30 sm.
Þyngd
Mismunandi, en þó undir 5.5 kg.

|