Aðalsíða | Um okkur | Fréttir | Íveruhús hunda | Tenglar | Hvolpar | Dalsmynnisræktun | Hvolpapartý | France Bulldog | > Hundar | > Tíkur | Pug | > Hundar | > Tíkur | Papillon | > Hundar | > Tíkur | Chihuahua | > Hundar | Tíkur | Japanese Chin | > Hundar | Calvalier King Charles Spaniel | Pomeranian | > Hundar | > Tíkur | Pincsher | > Hundar | > Tíkur | Pekingese | > Hundar | Púðli | > Hundar | > Tíkur | ChineseCrested | Tibetan Spaniel | Yorkshire Terrier | Sýningar

Dalsmynni hundagallerí ehf

Japanese Chin

wpe18.jpg                                     

Tegundalýsing

Japanski Chin er greindur, ánægður og kátur lítill hundur, sem elskar að vera miðja athyglinnar. Hann er barngóður og einnig góður í sambúð með öðrum hundum og dýrum. Hann er stundum hamslaus, Japanskur Chin er harðger, líflegur og árvakur. Hann verður mjög háður eiganda sínum. Ástúðlegur og blíður, hann geltir sjaldan sé tekið fyrir það strax og er vingjarnlegur félagi. Chin er tortrygginn gagnvart ókunnugum og þarf ákveðna þjálfun. Hann þolir nokkuð vel kalda veðráttu og borgarlíf. Þessi litla tegund er mjög algeng um allan heim.
Japanskur Chin var hundur keisarahirðarinnar í Japan. Einn japanskeisaranna sem var fæddur á ári hundsins, tók Chin í guðatölu, það jók mjög á virðingu hundsins. Hann barst til Evrópu og Ameríku á 19 öld. Í Japan var hann gæluhundur hefðar kvenna, einnig þegar hann kom til Evrópu var hann aðalega í eign hefðarfólks. Viktoríu drottning átti einn.
Chin er hreinlegur hundur, bursta þarf feldinn daglega. Fylgjast þarf vel með augum, eyrum og trýni. Klippa þarf klær eftir þörfum og baða þarf hann reglulega. Tegundin þolir hita illa.
Japanski Chin þarf ekki mikla hreyfingu en hefur gaman og gott af henni. Varist að ofgera þá vegna öndunarerfiðleika.
Leyfilegir litir eru svartur og hvítur, eða rauður og hvítur. Aldrei þrílitur. Hvít blesa er mikils metin.
Hæð á herðakamb u.þ.b. 25 sm.Þyngd 2 - 6 kg.
(Heimild: Hundabók AB; bla.227 og 229)

Meira um Japanskan Chin

Keisaralegur hundur fyrir alvöru fólk



Allur réttur áskilin og í eigu Dalsmynnis